4/10
- Kristinn Rúnar

- Oct 14
- 1 min read
Mig langar að leika mér aðeins með tölur, skala og líðan.
Ef að 4-6 er eðlileg líðan, 0-4 þunglyndi og 6-10 manía, þá myndi ég segja að ég sé u.þ.b. 4 núna. Örlítið fyrir neðan strik en ekki mjög þungur. Lífið gæti verið meira spennandi og hversdagslegir hlutir finnst mér sumir hverjir leiðinlegir. Lífið er oft á tíðum endurtekning út í hið óendanlega.
Ég var í reglubundnu eftirliti hjá geðlækninum mínum í gær og ég tjáði honum að mér fyndist vanta eitthvað til að gera lífið skemmtilegra og áhugaverðara.
Hann sagði að ég vildi svolítið vera í maníunni, þar væri líf, fjör og „action".
Ég get ekki neitað því, þó að jafnvægið sé líka gott og eftirsóknarvert.
Mynd tekin í dag í ágætis gír, einhvers staðar á milli annars og þriðja gírs.
KRK







Comments