Er til verri blanda en stanslaus uppköst og ofsakvíðakast?
Miðvikudagurinn 15. júlí 2026 var sennilega erfiðasti dagur lífs míns.Ég var kominn í alvarlegt líkamlegt og andlegt ástand. Hafði kastað nær stanslaust upp frá laugardagskvöldinu 11. júlí og þennan miðvikudag byrjaði ég að upplifa slæm ofsakvíðaköst með uppköstunum. Algjör draumastaða!
Ég þurfti að hringja nokkur myndsímtöl í fjölskyldumeðlimi heim til Íslands til að reyna að ná að anda bærilega.
Juan Andrés, vinur minn, þekkir nuddara í Guanajuato og við ákváðum í sameiningu að það væri ekki svo vitlaus hugmynd að fara til hans í slökunarnudd og reyna að ná örlítilli ró.
Jesús nuddari reyndist síðan einnig vera kírópraktor og tók mig í klukkutíma blöndu af nuddi og kíró fyrir litlar 5.400 kr. Það var erfitt að liggja á maganum helminginn af tímanum og èg fór beint út þegar við vorum búnir og kastaði upp.
Næst á dagskrá var að hitta lækni eða fara á sjúkrahús.
Á sunnudeginum, þremur dögum áður, hafði ég eytt tíu klukkutímum á sjúkrahúsi með morfín og vökva í æð og farið í alls kyns rannsóknir.
Á sunnudagskvöldinu leit út fyrir að allt yrði í lagi og ég var útskrifaður.
Mér fór síðan að versna mikið aftur strax á mánudeginum og ástandið á mér á miðvikudeginum var orðið virkilega slæmt.
Juan, heimamaður, þekkir vel til og sagði að þrennt væri í boði:
1. möguleikinn væri að fara á bráðamóttökuna, bíða í fimm klukkutíma eftir að komast inn og fá síðan mögulega lélega þjónustu.
2. möguleikinn væri að fara á einkasjúkrahús, fá mjög góða þjónustu en þurfa að borga u.þ.b. 200.000 kr. fyrir.
3. möguleikinn væri að hitta lækni fyrir 1.500 kr. sem vinnur fyrir apótek og sjá hvað kæmi út úr því. Við ákváðum að byrja á því.
Á meðan við biðum í klukkutíma eftir að hitta lækni kastaði ég sleytulaust upp fyrir utan apótekið. Svefnlaus í fjóra daga á undan, matar- og nær drykkjarlaus og ekki að ná að innbyrða nein þau lyf sem halda mér gangandi dagsdaglega, andlega og líkamlega.
Ég tjáði Juan að mér fyndist ég varla vera á lífi.
Loksins kom að mér og ung glæsileg kona, Wendy, tók á móti okkur.
Juan hjálpaði mér að útskýra ástandið á mér á spænsku þó að Wendy talaði smávegis ensku. Ástandið á mér var þannig að ég gat bara tjáð mig við illan leik.
Wendy skoðaði mig í bak og fyrir og sagði að ég hefði líklega lent í mjög slæmri matareitrun sem gæti tekið tíu daga að jafna sig. Hræðileg staða því ég er extra viðkvæmur eftir mjög erfiða gallblöðruaðgerð sem var framkvæmd fyrir ári síðan.
Wendy er gáfuð og áttaði sig á því að töflur myndu ekkert gera fyrir mig, ólíkt því sem aðrir læknar og heilbrigðisstarfsmenn gera trekk í trekk. Þú gefur ekki ælandi manneskju pillur og heldur að það svínvirki; maður ælir því bara áður en það á að virka.
Hún sagði við mig: „Þú þarft sprautur í fimm daga, beint í æð, nánar tiltekið í rass. Þú tekur þetta út hérna í apótekinu og við hittumst síðan og ég sprauta þig núna og næstu daga.“
Sprautan innihélt fjögur lyf: Sterk verkjalyf, sýklalyf, bólgueyðandi lyf og lyf sem hjálpa við að draga úr uppköstum. Þetta var algjör negla hjá henni!
Mér fór að líða betur fljótlega en átti auðvitað ennþá langt í land.
Einnig skrifaði hún upp á fyrir mig sterk svefnlyf og kvíðalyf, því þetta var orðið andlegt ástand líka.
Ég segi bara takk Wendy - Muchas gracias por todo amiga!
Og takk minn kæri Jón Andrés fyrir að vera alltaf traustur vinur og vera til staðar fyrir mig.
Einnig vil ég þakka öllum vinum og vandamönnum fyrir fallegu kommentin og skilaboðin síðustu daga og að peppa mig í döðlur. Ég er búinn að vera alveg í sögulegu lágmarki.
KRK





Comments