top of page

Líðanin þokkaleg

  • Apr 6
  • 1 min read

Ég myndi segja að líðanin sé þokkaleg, núna og undanfarið. Hef verið betri og hef verið verri ... sá frasi á reyndar almennt oft við.


Ákveðin þyngsli í gangi en alveg hægt að draga mann í stemningu.


Hef ekki farið í hláturskast síðan 5. júní 2010, sakna þess svolítið. Það kast var reyndar svo heiftarlegt að ég var eldrauður í augunum í marga daga á eftir.


Það er eins og það sé eitthvað mar á sálinni en það hlýtur að hjaðna með tíð og tíma, trúi ekki öðru.


One Love.


KRK



 
 
 

Comments


  • facebook
  • instagram

Reykjavík - Iceland

© 2026 Kristinn Rúnar

bottom of page