top of page

Lögreglan: Öllum geðdeildum hefur verið lokað og við erum ekki leigubíll fyrir þig

Updated: Jul 18, 2020

Ég fór í mína fimmtu maníu núna í júní, síðan ég greindist með geðhvörf árið 2009. Þessi var mjög snörp en ég gekk engu að síður algjörlega fram af sjálfum mér - bókstaflega. Ég gekk 100 kílómetra samfleytt dagana 17.-18. júní í 30 klukkutíma án þess að stoppa neitt. Ég fór í Mosó og ákvað eiginlega eftir mikið labb þar um að ég ætlaði að flytja í eina af blokkunum þar í framtíðinni. Hún er rosalega flott, með glæsilegum stórum gluggum og nokkuð vel falin.


Ég var að spá í að ganga vestur í Borgarnes en hætti við það og ákvað að skoða Mosó betur og var þar í rúmlega tvo daga ... svaf ekki neitt. Skoðaði mörg íbúðarhverfin og byggingar gaumgæfulega. Gekk hljóðlega framhjá hestum í kring, skoðaði náttúruna og vötn. Var orðinn töluvert skítugur og blautur eftir þessar raunir. Fékk mér sjeik, vatn og Coca Cola á Barion Bar og gekk síðan aftur í Kópavoginn. Það var komin helgi, síminn minn var orðinn óvirkur því ég hafði slegið leyninúmerið of oft vitlaust inn, sennilega sökum þreytu. Einnig er bíllinn minn bilaður, ég keyrði því ekki neitt í þessari maníu og gekk allt sem ég fór.


Ég var mættur í miðbæinn í frekar slæmu ástandi og það fór ekki framhjá neinum. Nema þá helst hjá lögreglunni, ótrúlegt alveg. Ég talaði fljótlega við hana, treysti mér ekki til þess að ganga í Kópavoginn sökum þreytu og einnig var ég farinn að finna gríðarlega til í hásinunum sem ég hélt fyrst að væru hælsæri því ég var að vígja nýju Jordan skóna mína þessa daga í maníunni. Þeir litu út eins og tveggja ára eftir á. Ég óskaði eftir því við lögregluna hvort þeir gætu skutlað mér á geðdeildina við Hringbraut því ég ætti nokkuð stóra og langa sögu þar inni, undandarinn rúma áratuginn. Ég var ekki búinn að sofa þarna í þrjá daga og leit ekki vel út, svarið sem ég fékk frá þeim var að geðdeildirnar væru ekki starfrækar lengur og að þeir væru uppteknir við annað og gætu því ekki hjálpað mér.


Í mínu skrítna og maníska ástandi þarna, hugsaði ég með sjálfum mér hvort barátta mín undanfarin ár, hefði skilað svo miklum árangri að við þyrftum ekki geðdeildir á Íslandi lengur. Ég ætlaði að reyna að ganga heim en gat það bara ekki, var sárkvalinn í hásinunum en dreif á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Þar var enginn á stöðinni en ég lét vita af mér með því að hringja á bíl. Þrír ungir lögregluþjónar komu og spjölluðu við mig, tvær stelpur og einn strákur. Þau voru frekar leiðinleg og dónaleg, sérstaklega strákurinn. Sögðust ekkert kannast við mig eða mína sögu og tjáðu mér að þau gætu ekki verið leigubíll fyrir mig. Ég brjálaðist af reiði, sagði þetta ömurlegan leikþátt hjá þeim og strunsaði öskrandi í burtu. Ekki alveg það sem ég þurfti á að halda í þessu ástandi, sem var orðið alvarlegt og lögreglan, af öllum aðilum, að gera það ennþá verra.


Hvað var þá til ráða? Ég tók ákvörðun að fara í Skeifuna og fikta í umferðinni, það hefur verið mitt ,,Go to move" síðustu ár í þessu ástandi. Ég gerði þetta til þess að ég fengi lögreglufylgd á geðdeild og öruggt pláss þar inni. Svakalegt að þetta hafi þurft miðað við mína sögu. Ég bjó til atriði í hausnum á leiðinni í Skeifuna, fann mér svona oddhvasst tréspjót sem er oft við umferðareyjur og öskraði á ökumenn og hótaði þeim. Spurði þá hvort þeir væru sekir eða saklausir ... yfir einhverju alvarlegu sem ég bjó til og náði að ,,sæka" mig upp og öskra stanslaust yfir í 15-20 mínútur. Tók góðan hring í Skeifunni og endaði uppi á brúnni ofan í bílum þar til lögreglan kom á tveimur bílum í algjöru losti og panikki yfir þessu leikriti sem ég hafði búið til. Ótrúlegt að ég hafi haft orku í þetta eftir allt það sem hafði gengið á dagana á undan. Þetta þurfti til svo að lögreglan tæki mig alvarlega. Hún spurði mig samt sem áður, þegar í lögreglubifreiðina var komið, hvort ég vildi fara heim til mín eða á geðdeild. Ég sagði: ,,Ég þarf að fara á geðdeild og fá tveggja vikna hvíld." Dagarnir þar inni urðu fimmtán talsins. Það var virkilega erfitt en nauðsynlegt að fá rammann utan um sig. Það eru alltaf 2-3 aðilar sem búa á bráðageðdeild 32 C hverju sinni og eru með gríðarleg læti. Engin önnur úrræði eru fyrir þessa aðila. Öll sú mikla spenna sem er þarna inni fer í lappirnar á mér og voru þær gríðarlega viðkvæmar fyrir að þessu sinni. Fyrstu dagana á deildinni voru þær eins og á líki, skjannahvítar og ekkert blóðblæði var til staðar.

Að vera á geðdeild er svolítið eins og að vera góður í póker. Þú ert oft á tíðum að sýna að þér líði vel þó svo að þér líði alls ekki vel, ert að sýna að þú sért æðstur eða einn af þeim æðstu þarna inni og að gríðarleg læti, pípandi varnartæki og sprettandi starfsmenn fái ekkert á þig og að þú sért ,,Cool as ice" yfir ástandinu. Að vera inni á bráðageðdeild hljómar ekkert svo svakalegt, en að vera þar í 2-3 vikur er algjör sturlun!


Meðfylgjandi eru tvær myndir, önnur af Jordan skónum sem voru glænýir fyrir 100 kílómetra gönguna og síðan mynd af mér í sjúkraþjálfun vegna verulega bólginna og illa tognaðra hásina. Sjúkraþjálfarinn minn sagði mér að ef ég væri atvinnumaður í íþróttum þá væri ég frá æfingum og keppni í þrjár vikur.


KRK





bottom of page