top of page

Sumarlögin 2021

Updated: Nov 24, 2021

Það er að birta svakalega hratt núna, sérstaklega þegar það er alltaf svona heiðskýrt hérna í Kópavoginum fagra. Rjómablíða og rock solid 7 gráður síðustu 10 dagana. Ekki hægt að biðja um mikið meira en það í maí. Birtan nær að koma mér á óvart á hverju einasta vori, þessi upplifun þurrkast nánast alfarið út þegar maður er hérna á klakanum í svartnættinu en ætti hins vegar að búa á suður Spáni, frá 1. október- 1. apríl. Allavega... Ég er búinn að skrifa hérna miklu meira en ég ætlaði mér. Tilgangurinn með þessum pósti eru top 3 maníulög sumarsins:


1. Follow You - Imagine Dragons.


Sturlað lag, tengdi það svo mikið við þegar ég hef verið paranoid í maníu. Yfirleitt þegar ég taldi aðra bíla elta mig en í eitt skiptið elti ég bíla í skjóli nætur til að hefna að einhverju leyti fyrir að hafa verið eltur. Eins og fólk jafnan gerir.


2. FLÝG UPP - Aron Can.


Þau gerast ekki meiri og sterkari maníulögin en þetta. Algjörlega frábært lag, á repeat frá fyrstu hlustun og verður alveg pottþétt vel fram á haustið.


3. Gírinn - Doctor Victor.


Ég hlakkaði mikið til þess að þetta lag kæmi út, vissi að það yrði sumar-hittari. Aldrei að vita nema að maður verði í hættulegum gír í sumar, það kemur í ljós á næstu vikum og mánuðum.


- Það er ekki til hræðsla í mér varðandi maniur, en það er ekki alveg þannig háttað með fjölskyldu mína og mitt nánasta fólk. Hefur samt lagast eftir að ég skrifaði Maníuraunir.


KRK


bottom of page